Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar
Kvæðamannamót 3. mars
kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi við kvæðamannafélagið Gefjunni á Akureyri og með stuðningi Menningarráðs
Eyþings og Þjóðlagseturs.  Það eru starfandi kvæðamannafélög víða um land, fámenn og einangruð, en
aðstandendur mótsins hafa fulla trú á því að ef við tökum höndum saman þá verður það til þess að efla
þessa hverfandi þjóðarhefð.
Á mótinu verður þriggja klst. námskeið (2x1,5 klst) sem Bára Grímsdóttir kvæðakona sér um. Hún mun kenna
okkur hefbundin kvæðalög og flutningsmáta þeirra, ásamt ýmsu öðru sem við kemur kvæðamennskunni.
Bára og maður henna Chris Foster, sem er virtur enskur þjóðlagasöngvari, eru með þjóðlagadúettinn Funaog koma beint
frá því að taka þátt í þjóðtónlistarhátíð í Sviss.  Þau munu halda stutta tónleika
laugardaginn 3. mars kl. 16:30 á Kaffi Rauðku, þar sem við fáum að heyra nokkuð af því efni sem þau fluttu í Sviss.
Hápunktur mótsins verður síðan kvöldvaka með glæsilegum kvöldverði á Kaffi Rauðku, þar sem kvæðamenn
stíga á stokk, og gömludansaball í lokin.
Dagskrá kvæðamannamótsins er nú tilbúin.