Balkönsk og austurlensk fjallatónlist ![]() Egypska tónlistarkonan Hanan EL-Shemouty er kunn fyrir námskeið sín um austurlenska tónlist víða um heim.
Hún hefur einnig sérhæft sig í balkönskum dönsum. Hún er búsett í Berlín og sækir Ísland nú öðru sinni
heim. Hún leikur á qanoun en er auk þess tónlistarkennari, tónfræðingur, tónskáld, útsetjari og sérlegur
fræðimaður á sviði arabískrar tónlistar. Hún kemur ásamt Hilmari Erni Agnarssyni organista og Steingrími
Guðmundssyni slagverksleikara en þau hafa unnið saman við tónlist í Berlín undanfarið misseri. Á Þjóðlagahátíð
mun hún halda Austrænt trommunámskeið: Hrynjandi, öndun, hreyfing og kraftur eru tengd nánum böndum. Þannig verða hugur og
hönd að vinna saman þegar leikið er á trommu. Trommuleikur hefur jákvæð áhrif á hreyfingu okkar, hugsun og líkamsbeitingu
(líkamsstöðu, raddbeitingu, öndun og fleira). Áður óbeisluð orak losnar úr læðingi og flæðir um líkamann. Trommuleikur
stuðlar að bættri einbeitingu og eykur innra jafnvægi. Höfuðáherslan er lögð á að menn skemmti sér við að leika saman. Nemendur
á námskeiðinu læra slagtækni, líkamsbeiting og hrynmynstur. Eftir því sem hver og einn nær sér á strik, fara
|
Íslensk þjóðlög Ragnheiður Gröndal er einn kunnasti tónlistarmaður Íslendinga af yngri kynslóðinni. Geisladiskur hennar, Íslensk þjóðlög, sem kom árið 2006, þótti sæta tíðindum. Með henni á tónleikunum leika Guðmundur Pétursson gítarleikari og Matthías Hemstock slagverksmaður, báðir þaulreyndir tónlistarmenn. |
|
Jóðl, Raddspuni og Bergmál – Frá ölpum til fjarða Sibyl Urbancic ólst upp á Íslandi, en býr í Vínarborg, þar sem húnhefur starfað sem orgel- og sembal-leikari og kórstjóri og kennt við Tónlistarháskólann í Vínaborg. Auk þess kennir hún Feldenkrais- aðferðina sem er ákveðin aðferð við líkamsbeitingu. Nýlega stofnaði hún í Vínaborg kórskólann NANO fyrir börn frá 3ja ára aldri. Hún heimsækir Ísland reglulega og heldur hér námskeið. Á Þjóðhátíðinni mun hún kynna jóðl-þjóðlög frá ýmsum svæðum Alpafjallanna, bæði frá Austurríki, Bayern og Sviss,og þátttakendum gefið tækifæri til að spreyta sig á nokkrum fleirra. Jóðl-lög þróuðust út frá köllum milli fjallshlíða með hjálp bergmáls á ákveðnum tónaröðum, sem höfðu vissa þýðingu, svo að fjallabúar gátu gert sig skiljanlega fyrr á farsímalausum öldum.Sibyl mun einnig halda námskeiðið Raddspuni. Ánámskeiðinu leiðbeinir Sibyl þátttakendum við að nota hugmyndaflug sitt til að skapa tónverk í sameiningu með þeim hljóðum, sem framleiða má með munninum einum saman. Raddspuni fylgir okkur allt okkar líf. Fyrstu og síðustu hljóðin, sem við gefum frá okkur, öll samskipti í orðum, öll heyranleg tjáning, allt utan þess, sem við lesum eða höfum upp eftir öðrum má telja til hans, raddspunans. Félagar í spunahópnum v o c e s s p o n t a n e frá Vínarborg taka þátt, öðrum þátttakendum til stuðnings. |
tónlistina.Hópurinn hefur tvívegis komið fram á Íslandi áður, á Kirkjulistarhátíð í Hallgrímskirkju í Reykjavík 1997, þá með Manuelu Wiesler flautuleikara, og á Myrkum Músíkdögum í Borgarleikhúsinu 2003.Johann Leutgeb er þekktur sem einsöngvari í nútímaóperum. Hann kennir öndun og líkamsbeytingu við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Karin Schneider-Riessne er söngkona og tónlistarkennari. Katharina Lugmayr, blokkflautuleikari, kennir blokkflautuleik og kammermúsík við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Hún er stofnmeðlimur hópsins MIKADO, sem flytur aðallega tónlist frá endurreisnartímanum.
|
Steindór Andersen, formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, er kunnasti kvæðamaður okkar Íslendinga nú um stundir og hefur lagt fram drjúgan skerf til varðveislu kvæðalaganna. Hann mun kynna kvæðalagasjóð Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Notast verður við bókina Silfurplötur Iðunnar, en þar getur að heyra 200 lög sem tekin voru upp á árunum 1935-36 en komu út haustið 2004 á nótum ásamt upptökum og ítarlegum skýringum. Komið af fjöllum
|
Norska fiðlunornin
![]() Norður-Noregi. Hún er landsfræg fyrir tónleika sína, einkum þegar hún spinnur eigin lög á fiðlu í þjóðlegum stíl. Best er að lýsa henni sem „fiðlunorn“ því hún hefur ótrúlegt vald á hlóðfærinu og heldur áheyrendum sínum hugföngnum meðan á leik hennar stendur. Með Susanne í för verður maður hennar, eitt þekktasta tónskáld Norðmanna, Rolf Wallin, og mun hann taka þátt í tónleikum hennar og umræðum um nýsköpun í þjóðlagatónlist. |
|
Barnatónleikarnir Jón bóndi Steinaspil og strengja ![]() Herdís Jónsdóttir víóluleikari og
Steef van Oosterhout slagverksleikari mynda Dúó Stemmu. Þau eru bæði fastráðnir hljóðfæraleikarar við Sinfóníuhljómsveit Íslands en hafa einnig tekið íslensk þjóðlög upp á sína arma og leika þau í útsetningum eftir sig sjálf. Á Þjóðlagahátíðinni munu þau m.a. frumflytja útsetningar Snorra Sigfús Birgissonar tónskálds á íslenskum þjóðlögum. |
Þjóðdansar frá Appalaichanfjöllum
|
Íslensk glíma
Oddbjörn Magnússon mun stikla á stóru um sögu þessarar þjóðaríþróttar Íslendinga. Kennd verða nokkur brögð, svo sem sniðglíma, hælkrókur hægri hægri og legggjarbragð. Námskeiðið er ætlað 10 ára og eldri. Oddbjörn Magnússon lærði glímu á Sauðárkróki af Árna Friðrikssyni. Hann hefur bæði kennt og keppt í glímu á Íslandsmeistaramótum.
|
Hið alþjóðlega trúbadorasamsæri ![]() |
Á slóðum kósakka ![]() Syðrifjalla balalækuhljómsveitin í Stokkhólmi sérhæfir |
Jón Geir Jóhannsson hefur tvisvar áður haldið námskeið í stompi fyrir unglinga á Þjóðlagahátíðinni. Þar er barið á allt sem gefur hljóð frá sér, bæði rör og kubba og búin til tónlist. Hópurinn semur tónlistina í sameiningu. Námskeiðinu lýkur með stuttum tónleikum fyrir gesti hátíðarinnar.
| Ullarþæfing Margrét Steingrímsdóttir |
Blómstursaumur á hliðartösku Gerla (Guðrún Erla Geirsdóttir) myndlistarkona hefur vakið athygli fyrir að |
Háskólakórinn syngur íslensk þjóðlög undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Háskólakórinn var stofnaður árið 1972 og hefur frá upphafi komið fram við helstu athafnir Háskóla Íslands. Í Háskólakórnum syngja nemendur úr öllum deildum Háskólans og öðrum menntastofnunum, íslenskir sem erlendir. Allan sinn starfstíma hefur Háskólakórinn kappkostað að kynna fagra tónlist fyrir félögum sínum jafnframt því að stuðla að framgangi kórtónlistar á Íslandi með því að frumflytja ný verk eftir íslensk tónskáld. Þá hefur kórinn á tveggja ára fresti farið utan og kynnt íslenska tónlist á erlendri grund. Í vor hélt kórinn til Berlínar og þriggja borga í Póllandi, Varsjár, Krakár og Poznan. Hann kemur nú fram í fyrsta sinn á Þjóðlagahátíð á Siglufirði. |
Ungfónía og Hljómsveit Benna Hemm Hemm
Benni Hemm Hemm stundaði nám við LHÍ og lauk þaðan prófi vorið 2007. Hann
hefur vakið athygli fyrir tónlist sína en hún þræðir einstigið milli klassískrar tónlistar og popptónlistar.
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins pantaði hjá honum tónverk fyrir hljómsveit hans og sinfóníuhljómsveit. Verkefnið
nýtur stuðnings evrópusjóðsins Evrópa unga fólksins.
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð 7. nóvember 2004. Hljómsveitin er skipuð nemendum úr tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu. Einleikarar með hljómsveitinni eru jafnan nemendur að ljúka framhaldsnámi erlendis eða eru nýkomnir heim frá námi. Hljómsveitin hefur tekist á við þrjú til fjögur verkefni á ári og haldið tónleika í Reykjavík, Keflavík, Selfossi, Stykkishólmi, Reykholti í Borgarfirði og á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Hljómsveitin frumflutti hér á landi óperuna Galdraskyttuna eftir Weber á Listahátíð í Þjóðleikhúsinu sumarið 2006 í samvinnu við Sumaróperu Reykjavíkur. Nýlega var henni boðið að taka þátt í alþjóðlegri listahátíð ungs fólks í Aberdeen í Skotlandi sumarið 2009. Tónleikar Ungfóníu og Benna Hemm Hemm eru styrktir af evrópusjóðnum Evrópa unga fólksins.
Gunnsteinn Ólafsson er stjórnandi Háskólakórsins og Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins. Hann
stundaði nám í tónsmíðum við Franz Liszt tónlistarakademíuna í Búdapest og síðar í
hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi. Gunnsteinn er listrænn stjórnandi
Þjóðlagahátíðar á Siglufirði og stjórnar uppbyggingu Þjóðlagaseturs þar í bæ.
Efnisskrá tónleikanna:
Aaron Copland: Vor í Appalaichan-fjöllum.
Benni Hemm Hemm: Nýtt verk frumflutt.
Felix Mendelssohn: Skoska sinfónían nr. 3
Uppskeruhátíðin er sameiginlegur fagnaður allra sem tekið hafa þátt í hátíðinni, og alla gesti bæjarins. Þar munu
nemendur sýna afrakstur námskeiða, íslenskir söngdansar og dansar frá Appalaichan-fjöllum dansaðir og félagar í Syðrifjalla
balalækuhljómsveitinni leika fyrir dansi. Einnig mun Danshópurinn Sporið frá Borgarfirði sýna vikivaka, en danshópurinn tók
nýlega upp myndband með söngdönsum fyrir Þjóðlagasetrið. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkir dansar eru myndaðir á skipulegan
hátt. Í tilefni af opnun myndbandssýningar á dansi þeirra í setrinu kemur hópurinn fram á þjóðlagahátíð og
sýnir söngdansa.
Myndlistarsýning
Á vegum hafsins
Jóhanna Bogadóttir á Gránulofti og í Ráðhússalnum
Tvær sýningar verða opnaðar á verkum Jóhönnu Bogadóttur myndlistarkonu á Þjóðlagahátíðinni á
Siglufirði, önnur í Galleríi Gránu á Síldarminjasafninu og hin í Ráðhússalnum. Sýnd eru málverk, teikningar og
grafík um hafið og lífsbaráttuna en það hefur löngum verið mikilvægt þema í verkum Jóhönnu. Þar eru hughrifin
bæði sprottin úr uppruna og uppvexti í Vestmannaeyjum og á Siglufirði. Átökin við náttúruöflin geta einnig verið
myndlíking fyrir lífsbaráttu mannsins hvar sem er í heiminum. Áhrif utan úr heimi, frá suðrinu eru líka þáttur í
þessari sýningu. Hluti verkanna er unninn úr skissum frá vesturströnd Afríku, frá vinnustofudvöl á ströndinni í Benin
þar sem róið er til fiskjar á opnum bátum frá brimsorfinni, hafnlausri strönd. Einnig frá skoðunarferðum í byggð á
staurum úti í vatni sem minna óneitanlega á staurabyggð síldarplananna. Eitthvað verður af ljósmyndum til að sýna tengslin
nánar.


Á
Hundur í óskilum nefnist tvíeyki þeirra Hjörleifs Hjartarsonar, gítar og
söngur, og Eiríks Stephensen, bassi og söngur.

Phil Jamison er þekktur í Ameríku sem













