Ríma
Andrómeda4
![]() |
Grieg i Jötunheimum
|
Pétur og úlfurinn eftir Sergei Prokofiev
Bernd Ogrodnik tók þátt í
þjólagahátíðinni á Siglufirði í fyrsta sinn árið 2006 og vakti þá mikla athygi fyrir brúðuleikhús sitt.
Að þessu sinni hyggst hann segja söguna um Pétur og úlfinn við tónlist Prókofjefs. Bernd býr búi sínu í Skíðadal
en er með sýningar í Þjóðleikhúsinu sem og við erlend leikhús. Hann nýtur mikillar virðingar fyrir list sína og er talinn vera
meðal færustu brúðuleikhúsmanna heims. Bernd Ogrodnik færir okkur þetta yndislega ævintýri á formi brúðuleikhúss,
þar sem tónlisti er birt myndrænt með aðstoð handútskorinna leikbrúða sem Bernd stjórnar af sinni alkunnu snilld.
|
Funi
![]() Bára Grímsdóttir söngkona og tónskáld hefur um langt árabil verið flytjandi íslenskra þjóðlaga og kvæðalaga. Hún ólst upp við kveðskap og söng foreldra sinna og afa og ömmu, m.a. í Grímstungu í Vatnsdal. Þegar fjölskyldan flutti suður til Reykjavíkur gerðust foreldrar hennar félagar í Kvæðamannafélaginu Iðunni og fór Bára jafnan með þeim á fundi og í sumarferðir félagsins. Bára hefur sérstakan áhuga á rímum og kvæðalögum en hefur einnig kynnt sér hinn fjölbreytilega þjóðlagaarf liðinna alda, bæði veraldlegan og trúarlegan. Hún hefur sungið með Sigurði Rúnari Jónssyni og Njáli Sigurðssyni og þjóðlagahópnum Emblu og komu þau fram á tónleikum á Íslandi og víða í Evrópu, Norður Ameríku og Kína. Chris Foster ólst upp í Somerset á Suðvestur - Englandi. Þar heyrði hann fyrst ensk þjóðlög sungin og leikin og þar hóf hann tónlistarferil sinn. Hann hefur í þrjá áratugi komið fram á tónleikum víða á Bretlandseyjum, Evrópu og Norður- Ameríku. Hann er tvímælalaust frábær flytjandi enskrar þjóðlagatónlistar. Með sínum sérstaka stíl flytur hann m.a. söngva um rómantík, galdra, morð, áfengi, ástina, hjúskaparbrot og klæðskiptinga. Hvert lag er sérstök saga. Samvinna þeirra Báru hófst árið 2000. Síðastliðin 5 ár hafa þau komið fram á ýmsum hátíðum, tónleikum og í útvarpi á Íslandi, Englandi, Skotlandi, Írlandi, Belgíu, Bandaríkjunum, Kína og Ungverjalandi. Í júní 2004 gáfu þau út geisladiskinn Funa og hafa þau fengið mikið lof fyrir hann. Gestur tvíeiksins á tónleikunum er Íma Þöll Jónsdóttir, fiðluleikari. |
Sönglög frá Armeníu
Susanna Martirosyan stundaði nám við
Tónlistarháskólann í Yerevan og varð að námi loknu einn aðalsöngvarinn við Þjóðaróperu Armena þar í borg.
Hún stundaði framhaldsnám í tengslum við La Scala-óperuna í Mílanó og lauk prófi frá
Verdi-tónlistarháskólanum þar í borg. Hún hefur unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum á borð við keppnina
í Toulous og París í Frakklandi og í Pavia og Bussetto á Ítalíu, ýmist önnur eða þriðju
verðlaun. Susanna var ráðin við óperuna í St. Pétursborg í
Rússlandi árið 1993 þar sem hún söng í áratug helstu aðalhlutverk, svo sem Aídu og Tosku í samnefndum óperum.
Nú er hún prófessor við Tónlistarháskólann í Yerevan og sinnir einnig tónleikaferðum víða um heim. Á
þjóðlagahátíð syngur hún lög eftir armensk tónskáld og þjóðlög frá heimalandi sínu.
Armen Babakhanian er armenskur píanóleikari í fremstu röð. Hann hefur haldið tónleika um allan heim, tekið þátt í fjölda
keppna fyrir unga píanóleikara og jafnan verið í efstu sætum. Babakhanian leikur gjarnan með fremstu strengjakvartettum veraldar, á borð við
ungverska Takács-kvartettinn, Lark- kvartettinn enska og Bandaríska strengja-kvartettinn. Flutningur hans með Takács-kvartettinum á kvintett eftir Schostakovich var
kjörinn besti tónlistarflutningur ársins 1995.
![]() Ameríska fjallalangspilið Jerry Rockwell er einn kunnasti mountain dulcimer- eða fjallalangspilsleikari Bandaríkjanna. Hann hefur gefið út geisladiska með lögum fyrir þessa sérstæðu frænku íslenska langspilsins. Jerry Rockwell og Örn Magnússon munu leiða saman hesta sína á þessum fyrstu tónleikum hérlendis sem helgaðir eru langspilinu. |
Þið þekkið fold með blíðri brá Kristjana Arngrímsdóttir er búsett á Tjörn í
Svarfaðardal. Hún hefur verið óþreytandi að halda íslenskum tónlistararfi á lofti. Hún hefur komið fram bæði á
Íslandi og í Danmörku og flutt bæði íslensk og dönsk þjóðlög. Í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli
Jónasar Hallgrímssonar hefur söngkonan tekið saman lög við ljóð skáldsins og flytur á þjóðlagahátíð
ásamt félögum sínum frá Tjörn, þeim Erni Eldjár, Ösp Kristjánsdóttur, Kristjáni
Eldjárn Hjartarsyni og Þórarni Hjartarsyni kvæðamanni. Frumflutt verða ný lög eftir íslensk
tónskáld. |
Kvintbræður Kvintbræður eru Örn og Sigursveinn Magnússynir.Þeim til fulltingis erMarta G. Halldórsdóttir söngkona. Þau hafa undanfarin misseri kafað ofan í íslenskan þjóðlagaarf og vakið til lífsins gömul lög sem ekki hafa heyrst flutt hér á landi frá því fyrr á öldum. Örn hefur stundað rannsóknir á langspilshefð okkar Íslendinga og annarra þjóða og tileinkað sér hljóðfærið með sérlega góðum árangri. Þá hafa þeir bræður endurvakið gamla tvísönginn með glæsibrag. |
Tríó Hanne Juul frá Svíþjóð er
skipað þeim Hanne Juulsöngkonu, Mats Bjarki Gustavii píanista og Joakim Rolandson saxófónleikara. Hanne Juul er ein atkvæðamesta vísnasöngkona Norðurlanda. Hún bjó um skeið
á Íslandi og var þá virkur þátttakandi í starfi Vísnavina og skipulagði hátíð á þeirra vegum hér
á landi. Hún hefur gefið út fjölda geisladiska og sungið í útvarpi og sjónvarpi. Félagar hennar í tríóinu eru hver
um sig skapandi tónlistarmenn; hafa samið tónlist fyrir leikrit og kvikmyndir auk þess að kenna við tónlistarháskólann í Ingesund í
Svíþjóð. Gestur triósins í hátíðinni er Steindór
Andersenkvæðamaður.
Cappella con moto frá Freiburg í Þýskalandi er nýlegur kór en hefur vakið óskipta athygli fyrir vandaðan söng. Hann hefur haldið tónleika í Freiburg í Svartaskógi og nágrenni. Kórinn flytur verk frá flestum tímum tónlistarsögunnar, einkum rómantísk verk og frá endurreisnartímanum. Á tónleikunum á þjóðlagahátíðinni syngur kórinn kvartetta eftir Jóhannes Brahms. Angela Baltes syngur einsöng, Albrecht Dammeier leikur á píanó en stjórnandi er Markus Uhl. |

Narodna Musika leikur búlgarska tónlist. Flokkinn skipa Borislav Zgurovski - mikill harmónikkuvirtúós, Enis Ahmed tambourasnillingur, ásamt þeim Hauki Gröndal, saxófón- og klarinettuleikara, Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Erik Quiká slagverk. Þeir koma fram á uppskeruhátíð Þjóðlagahátíðar og slá með því botninn í tónleikaferðalag sveitarinnar um Ísland.
Dúó Ríma er skipað tveimur ungum hljóðfæraleikurum, þeim Eriku
Södersten víóluleikara frá Svíþjóð og Gunnhildi Höllu
Guðmundsdóttursellóleikara. Erika og Gunnhildur kynntust við Konservatóríið í Kaupmannahöfn þar sem þær stunduðu
báðar framhaldsnám. Þær hafa starfað saman um árabil og fengið fjölmörg tónskáld til þess að semja fyrir sig ný
verk, þ.á.m. Hafliða Hallgrímsson. Að þessu sinni frumflytja þær nýtt verk eftir Hafdísi Bjarnadóttur sem nýlega lauk
námi við LHÍ í tónsmíðum en auk þess eru á efnisskrá verk eftir norræn tónskáld fyrir víólu og
selló.
Dansað í höllu Dofrans
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð 7. nóvember 2004. Hljómsveitin er skipuð nemendum á höfuðborgarsvæðinu sem
lengst eru komnir í hljóðfæranámi. Aðalstjórnandi hljómsveitarinnar er Gunnsteinn Ólafsson. Að
þessu sinni flytur armenski píanóleikarinn Armen Babakhanian píanókonsert eftir landa sinn John Sarkissian með hljómsveitinni. Þá leikur
hljómsveitin svíturnar tvær úr Pétri Gaut eftir Edvard Grieg í tilefni af 100 ára dánarártíð tónskáldsins.Gunnsteinn Ólafsson stundaði framhaldsnám í tónlist í Ungverjalandi og Þýskalandi. Hann er listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði og kom þar á fót Þjólagasetri í sumar sem leið. Hann kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík og við tónlistardeild LHÍ. Efnisskrá tónleika Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins: John Sarkissian: Konsert fyrir píanó, slagverk og strengi Edvard Grieg: Pétur Gautur |
Námskeið
Hálfsdagsnámskeiðin eru ýmist frá kl. 9.00-12.00 eða 14.00-17.00 í tvo daga, fimmtudag 5. og föstudag 6. júlí.Heilsdagsnámskeiðin eru frá kl. 9.00-12.00 og 14.00-17.00 í tvo daga, fimmtudag 5. og föstudag 6. júlí.
Klezmer-tónlist (Gyðingatónlist) - Heilsdagsnámskeið
Kennarar: Íma Þöll Jónsdóttir og Andromeda4, Boston
Íslensk glíma - Fyrir hádegi- Kennari: Oddbjörn Magnússon
Stiklað verður á stóru um sögu þessarar þjóðaríþróttar Íslendinga. Kennd verða nokkur brögð, svo sem
sniðglíma, hælkrókur hægri hægri og legggjarbragð. Námskeiðið er ætlað 10 ára og eldri. Oddbjörn Magnússon
lærði glímu á Sauðárkróki af Árna Friðrikssyni. Hann hefur bæði kennt glímu og keppt í henni á
Íslandsmeistaramótum.
Rímnakveðskapur - Eftir hádegi- Kennari: Steindór Andersen
Á námskeiðinu mun Steindór Andersen kynna kvæðalagasjóð Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Notast verður við bókina
Silfurplötur Iðunnar, en þar getur að heyra 200 lög sem tekin voru upp á árunum 1935-36 en komu út haustið 2004 á nótum ásamt
upptökum og ítarlegum skýringum. Steindór Andersen er kunnasti kvæðamaður okkar Íslendinga nú um stundir og hefur lagt fram drjúgan
skerf til varðveislu kvæðalaganna. Hann er formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar.
Magadans - Fyrir hádegi- Kennari: Kristína Berman
Langspilsleikur - Fyrir hádegi- Kennari: Jerry Rockwell
Hreyfileikir og spuni - Eftir hádegi- Kennari: Kristín Valsdóttir
Keðju- og skartgripagerð - Heilsdagsnámskeið- Kennarar: Ásdís Birgisdóttirog
Margrét Linda Gunnlaugsdóttir
Keðjugerð: Nemendur læra að gera keðjur með aðferð sem þekkst hefur frá miðöldum. Notaður er kopar-
og silfurvír. Nemendur læra að saga í sundur og lykkja saman eftir mismunandi aðferðum svo úr verða mismunandi mynstur, t.d. kóngakeðja og
drottningarkeðja. Nemendur taka með sér fínar tangir (spóakjaft) og klíputöng ef þeir eiga. Skartgripagerð -
perlufestar: Nemendur læra að raða saman perlum og steinum, þræða á silkiþráð í hálsfestar og armbönd. Einig er
boðið upp á gera eyrnalokka. Notaðar eru ferskvatnsperlur og slípaðir steinar, túrkís, aborít, granat, períódít, kristall,
blóðsteinn, skrautperlur úr úr silfri og húðuðu silfri, einnig silkiþráður, stálvír, festingar úr silfri og
gullhúðuðu silfri, eyrnalokkafestingar og fleira. Ásdís Birgisdóttir textílhönnuður hefur kennt skartgripa- og keðjugerð við
Heimilisiðnaðarskólann í nokkur ár. Auk þess hefur hún hannað handprjón og textíl fyrir verslanir, tímarit og sýningar.
Margrét Linda Gunnlaugsdóttir er textílhönnuður og þjóðfræðingur. Hún hefur starfað við hönnun í mörg
ár.
Sagnanámskeið - Fyrir hádegi- Kennarar: Ingi Hans Jónsson og Sigurborg Kr. Hannesdóttir
Brúðugerð og brúðuleikhús - Heilsdagsnámskeið- Kennari: Bernd
Ogrodnik
Blómstursaumur á hliðartösku - Eftir hádegi- Kennari: Gerla
Á námskeiðinu verður kenndur blómstursaumur á hliðartösku. Nemendur geta valið úr nokkrum forteiknuðum þjóðlegum munstrum
eða teiknað sitt eigið munstur. Nemendur útsauma með blómstursaumnum á framhlið lítillar hliðartösku (stærð c.a. 17 x 25 cm). Stefnt
er að því að í lok námskeiðsins hafi hver nemandi lokið við fullunna tösku, tilbúna til notkunar. Blómstursaumur
tíðkaðist mikið á 18. og 19. öldinni og var sú saumgerð sem mest var notuð í samfellubekki. Einnig eru á söfnum landsins nokkur
sessuborð með þessari saumgerð. Blómstursaumsporið er saumað ekki ósvipað varplegg, en er þó líkara steypilykkju að sjá.
Eins og nafnið gefur til kynna voru munstur unnin með blómstursaum flest sótt í flóru landsins. Efniskostnaður 1.000.kr. Gerla (Guðrún Erla
Geirsdóttir) hefur vakið athygli fyrir að endurvekja gamalt handbragð í hannyrðum, svo sem refilsaum og skreytingu klæða með roði. Hún hefur
haldið sýningar og unnið til verðlauna fyrir hugmyndaríka hönnun, ekki síst fyrir refilsaum og nýtingu á fiskiroði.
Námskeið fyrir börn og unglinga
Allt frá upphafi þjóðlagahátíðar hefur börnum þátttakenda verið boðið upp á ókeypis námskeið af ýmsum toga. Þau hafa notið mikilla vinsælda og lætur nærri að þriðjungur þátttakenda á námskeiðum á hátíðinni séu börn og unglingar.
Leiklistarnámskeið fyrir börn 9-12 ára - Heilsdagsnámskeið - Kennarar fráLeikfélagi Siglufjarðar
Nemendum er skipt í hópa sem hver um sig undirbýr atriði á uppskeruhátíð hátíðarinnar. Hóparnir spinna leikþátt
og búa sjálfir til leikmynd og búninga.
Spunatónlist fyrir unglinga 13-16 ára - Heilsdagsnámskeið - Kennarar: Hildur Guðný
Þórhallsdóttir og Þórdís Heiða Kristjánsdóttir (Öll hljóðfæri á
staðnum).
Á þjóðlagahátíðinni verður boðið var boðið upp á spunanámskeið fyrir unglinga. Öll hljóðfæri eru
á staðnum. Hildur og Þórdís hafa áralanga reynslu í slíkum námskeiðum fyrir börn og unglinga. Afrakstur námskeiðsins
verður kynntur á sérstökum tónleikum.
Eftirfarandi námskeið fullorðinna eru einnig fyrir börn og unglinga:
Brúðugerð og brúðuleikhús(fyrir 12 ára og eldri)
Íslensk glíma (fyrir 12 ára og eldri)


















