Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar

Háskólanámskeið um íslenska þjóðlagatónlist Námskeið sem Þjóðlagsetrið á Siglufirði og Stofnun Árna Magnússonar standa fyrir    Umsjónarmaður: Rósa

Þjóðlagaakademía 2010


Háskólanámskeið um íslenska þjóðlagatónlist

Námskeið sem Þjóðlagsetrið á Siglufirði og Stofnun Árna Magnússonar standa fyrir

   Umsjónarmaður: Rósa Þorsteinsdóttir rannsóknarlektor
   Tími: 7.-11. júlí 2010
   Kennslustaður: Kirkjuloftið í Siglufjarðarkirkju.
   Forkröfur: Stúdentspróf
   Einingar: 2

Námskeiðsgjald: Háskólanemendur greiða ekki námskeiðsgjald en kr. 7000 fyrir aðgang að öllum viðburðum og tónleikum Þjóðlagahátíðar á Siglufirði. Aðrir greiða kr. 20.500 fyrir þátttöku í Akademíunni og aðgang að öllum viðburðum og tónleikum á Þjóðlagahátíðinni. (Öryrkjar, atvinnulausir og 67 ára og eldri greiða einnig kr. 7.000).
Gisting í svefnpokaplássi kr. 8000 fyrir fjórar nætur.
Skráning stúdenta: Sendið netpóst á festival@folkmusik.is og afrit til Rósu á rosat@hi.is

Markmið
Að nemendur
•    fái glögga mynd af heimi íslenskra þjóðlaga, þjóðkvæða og þjóðdansa
•    þekki sögu þjóðlagasöfnunar á Íslandi
•    þekki meginþætti íslenskrar þjóðlagatónlistar
•    kynnist erlendri þjóðlagatónlist og greini í hverju sérstaða íslenskra þjóðlaga sé fólgin

Viðfangsefni
Á námskeiðinu verður fjallað um öll helstu svið íslenskrar þjóðtónlistar og þjóðdansa. Þar má nefna tvísöng, rímnalög og bragarhætti, vikivaka og aðra þjóðdansa, barnagælur og þulur, gömlu sálmalögin, þjóðlagaútsetningar og hljóðfærahefð Íslendinga. Fjallað verður um einkenni munnlegrar geymdar og söfnun íslenskra þjóðlaga. Viðfangsefni Akademíunnar tengjast einnig þeim gestafyrirlesurum og listamönnum sem tengjast þjóðlagahátíð hverju sinni.

Vinnulag
Fyrirlestrar og umræður, virk þátttaka í söng og dansi, tónleikar sóttir, ásamt kynningu á þjóðlagasöfnun og þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteinssonar. Sóknarskylda er á alla fyrirlestra og farið er fram á virka tónleikasókn. Einnig ber nemendum að halda dagbók yfir námið í Akademíunni og tónleikana sem þeir sækja.

Námsmat

Nemendur eru metnir eftir ástundun, virkri þátttöku í umræðum, söng og dansi, dagbók og skriflegri greinargerð um viðfangsefni og viðburði Akademíunnar. Dagbók og greinargerð skal skila til umsjónarmanns fyrir 1. ágúst. Námsmati skal lokið 31. ágúst.


Dagskrá Þjóðlagaakademíunnar 2010

Miðvikudagur 7. júlí   

16.00-17.00     Móttaka í Þjóðlagasetri: Kynning á sr. Bjarna Þorsteinssyni og starfi hans. Gunnsteinn Ólafsson, tónlistarmaður
     - - - - -
20.00-23.00     Tónleikar á Þjóðlagahátíð

Fimmtudagur 8. júlí

09.00-11.00     Rímnalög og rímur. Bára Grímsdóttir, tónskáld og kvæðakona
11.00-12.00     Munnleg kvæðahefð og söfnun íslenskra þjóðlaga. Rósa Þorsteinsdóttir
    - - - - -
13.00-14.00     Íslensk þjóðlög í handritum. Örn Magnússon, tónlistarmaður
14.00-16.00     Íslenskir þjóðdansar og danskvæði. Kolfinna Sigurvinsdóttir, þjóðdansakennari og Rósa Þorsteinsdóttir
    - - - - -
20.00-24.00     Tónleikar á Þjóðlagahátíð

Föstudagur 9. júlí

09.00-10.00     Barnagælur og þulur. Rósa Þorsteinsdóttir
10.00-11.00     Tvísöngur. Gunnsteinn Ólafsson
11.00-12.00     Tónlist í Ghana. Dr. Guðrún Ingimundardóttir, tónskáld og tónlistarmannfræðingur
    - - - - -
13.00-14.00     Fiðlan sem ásláttarhljóðfæri. Íma Þöll Jónsdóttir, tónlistarmaður
14.00-15:00     Útsetningar á þjóðlögum. Bára Grímsdóttir
15.00-16.00     Íslensk fiðla og langspil. Chris Foster, tónlistarmaður
    - - - - -
20.00-24.00     Tónleikar á Þjóðlagahátíð

Laugardagur 10. júlí

10.00-12.30     Íslenskir þjóðdansar og gömlu dansarnir. Kolfinna Sigurvinsdóttir og Hulda Sverrisdóttir
    - - - - -
13.30-16.00     Nemendur undirbúa sig fyrir uppskeruhátíðina.
    - - - - -
20.30-              Uppskeruhátíð: Nemendur koma fram og sýna hvað þeir hafa lært á Þjóðlagaakademíunni.

Sunnudag 5. júlí

14.00-15.30     Tónleikar á Þjóðlagahátíð.


Auglýsingar

Raddir Íslands
Fjallabyggð
Menningarráð Eyþings
Tónlistarsjóður
Rauðka ehf
Gistihúsið Hvanneyri
Síldarminjasafnið
Siglufjarðarkirkja
Rammi
Tónastöðin
Byko
Norvík

Mynd augnabliksins

img_3283.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf