Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar

Á námskeiðinu verður kennt hvernig finna megi heimildir til að skrifa ævibrot fólks úr fortíðinni. Farið verður í hvar hægt er að nálgast

Rýnt í ræturnar

Á námskeiðinu verður kennt hvernig finna megi heimildir til að skrifa ævibrot fólks úr fortíðinni. Farið verður í hvar hægt er að nálgast ættfræðiupplýsingar, hvernig leita megi upplýsinga um látna einstaklinga í kirkjubókum og manntölum, einnig hvaða gögn finnist í slíkum heimildum. Hjálpartæki verða kynnt sem geta gefið ómetanlegar upplýsingar um efnahag og aðrar aðstæður einstaklinga í fortíðinni. Ennfremur verður farið í hvaða heimildir hægt er að sækja á netinu, gefnar leiðbeiningar um munnlegar heimildir og hvernig best sé að vinna úr upplýsingum.

Kennari er Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur og rithöfundur. Hún hefur stundað ættfræðirannsóknir í tengslum við bækur sem hún hefur skrifað og miðlar hér af reynslu sinni.

Auglýsingar

Síldarminjasafnið
Raddir Íslands
Héðinsfjörður

Mynd augnabliksins

melchior_fixed.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf