

Norðurþjóðaverkefnið
Þjóðlagasetrið á Siglufirði á frumkvæðið að því að sameina þjóðdansa og þjóðtónlist allra landa við norðanvert Atlantshaf.
Markmið verkefnisins er að þróa arðbæra atvinnugrein sem byggir á varðveislu, rannsóknum og kynningu á þjóðdönsum og þjóðtónlist þessara þjóða: opna veglega sýningarsali helgaða þjóðtónlist og þjóðdönsum landanna við norðanvert Atlantshaf; byggja upp fjölþjóðlega akademíu sem kennir þjóðtónlist og þjóðdansa í menningarsögulegu samhengi; koma á fót sameiginlegum gagnagrunni og halda veglega þjóðlagahátíð allra landanna.
Undirbúningsvinna og leit að samstarfsaðilum, innanlands og utan, hófst fyrir alvöru fyrir rúmu ári og lauk þeim fyrst áfanga í mars
2009 með því að sótt var um forstyrk til Norðurslóðaáætlunar
Evrópusambandsins og í Norrænu menningargáttina. Báðir styrkirnir fengust og
hófst Norðurþjóðaverkefnið formlega 1. júní síðast liðinn. Þjóðlagasetur og Fjallabyggð eru leiðandi aðilar
forverkefnisins og er dr. Guðrún Ingimundardóttir verkefnisstjóri.
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Fyrsti fundur með öllum aðilum verkefnisins verður haldinn í Harnosand í Svíþjóð dagana 9.-12.
ágúst. Þar verður m.a. rætt um útlistun á vinnuferlum, verkaskiptingu, markhóp verkefnisins og kynningarmál, auk þess sem farið
verður ofan í reglur og umsóknarferli Norðurslóðaáætlunarinnar. Forverkefninu líkur í mars á næsta ári með
því að samstarfsaðilarnir sækja sameiginlega um styrk til þriggja ára í Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins og einnig
í Norræna sjóði. Samstarfsaðilarnir Samstarfsnetið nær nú þegar til allra landanna en enn eru viðræður í gangi vegna samstarfs við Sama. Einn leiðandi aðili kemur að verkefninu frá hverju landi. Þeir eru: Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar og Fjallabyggd - www.folkmusik.is, www.fjallabyggd.is Ceolas, Keltneski tónlistar og dans sumarskólinn, Skotlandi - www.ceolas.co.uk Þjóðminjasafnið á Grænlandi - www.natmus.gl Háskóli Færeyja - www.setur.fo Akademía Ole Bull í Voss, Noregi - www.olebull.no Murberget, menningarminjasafn í Härnösand, Svíþjóð - www.ylm.se Þjóðlagastofnunin í Kaustinen, Finnlandi - www.kaustinen.net Clare College of Traditional Studies, Írlandi - www.oac.ie Þessir aðilar búa yfir mikilli þekkingu og reynslu hver á sínu sviði sem nýtast mun verkefninu í heild, en auk þess mun hver aðili starfa náið með fyrirtækjum og stofnunum á sínu svæði að einstökum þáttum verkefnisins. Verkefnið
|
Norðurþjóðanetið er sameiginlegur gagnagrunnur allra þjóða við norðanvert Atlantshaf. Hér á landi munu fjölmargar innlendar
stofnanir, samtök og listamenn koma að uppbyggingu gangagrunnsins, vali efnis, myndbandsupptökum, fræðilegum skrifum og gerð kennsluefnis.
i. |
Myndbandsupptökur: Megin uppistaða gagnagrunnsins eru myndbandsupptökur af þjóðlagaflutningi og þjóðdönsum. |
ii. |
Rannsóknir: Gagnagrunnurinn mun geyma nýjustu rannsóknir á þjóðlagatónlist, þjóðdönsum og hljóðfærum hvers lands. |
iii. |
Nótur og danslýsingar: Markmiðið er að bjóða upp á þjóðlagatónlist á nótum og skriflegar danslýsingar. |
iv. |
Kennsluefni: Stefnt er að því að grunnskólar, tónlistarskólar og háskólar geti nýtt gagnagrunnin sem ítarefni við kennslu í tónlist, tónmennt, dansi, þjóðfræði og mannfræði svo eitthvað sé nefnt. Jafnframt mun unnið fjölbreytt námsefni úr gagnagrunninum þar sem tónlist allra þjóðanna við norður Atlantshaf verður kynnt í öllum sínum fjölbreytileika. |
II. Norðurþjóðsetur
Norðurþjóðasetur mun verða sett á fót í hverju samstarfslandi að fyrirmynd Þjóðlagasetursins á Siglufirði. Í
öllum samstarfslöndunum eru glæsileg þjóðminjasöfn sem hafa til sýnis muni sem tengjast fornum búskaparháttum, menningu og hefðum.
Norðuþjóðanetið mun bæta við nýrri vídd með mynd og hljóði þar sem gestum safnsins gefst færi á að sjá og
heyra þjóðtónlist og þjóðdansa nágranna sinna.
i. |
Sýning á efni gagnagrunnsins: Norðurþjóðasetrið mun hafa til sýnis muni tengda tónlist og dansi. Stórir skjáir sýna tónlist og dans Norðurþjóðanna, en markmiðið er að hvert land hafi afmarkað rými þar sem menning þess og listir séu til sýnis á skjá og í munum. |
ii. |
Tónleikaaðstaða: Tónlistarmenn og dansarar munu ferðast á milli Norðurþjóðasetranna og halda tónleika og
sýningar. |
iii. |
Rannsóknaraðstaða: Norðurþjóðasetrið mun bjóða upp á óheftan aðgang að gagnagrunni Norðurþjóðanetsins. Fræðimenn, tónlistarmenn og dansarar fá aðstöðu í setrinu til að rannsaka og vinna með þjóðtónlist og þjóðdansa landanna til að auka þekkingu og vinna ný tónlistar- og dansverk á gamalli hefð. |
III. Norðurþjóðaakademía
Grunnhugmyndin er að hvert land fyrir sig kenni sýna eigin þjóðtónlist og þjóðdansa í menningarsögulegu samhengi. Stefnt er að
því að akademían verði starfrækt í mánuð að sumri og muni vera hluti af háskólagráðu og/eða námi á
framhaldsskólastigi.
i. |
Hljóðfæranám, söngnám, og dansnám: Boðið verður upp á nám í hljóðfæraleik, þjóðdönsum, þjóðlagasöng og kvæðamennsku. |
ii. |
Tónsmíðar/danshönnun: Nýsmíðar sem byggja á þjóðtónlist og þjóðdansi er mikilvægur liður í að færa forna hefð til samtímans og gera hana að því lifandi afli sem hún þarf að vera á hverjum tíma. |
iii. |
Fræðigreinar: Kennd verður tónfræði þjóðtónlistar, dansfræði og rannsóknaraðferðir mannfræði og þjóðfræði undir hatti ethnomusicology og ethnochoreology. Auk þess verður hljóðheimsfræði (Acoustic Ecology) liður í starfsemi Akademíunnar. Hljóðheimur strjálbyggðra Norrænna þjóða er einstakur á sinn hljóðlega hátt og litlar breytingar á umhverfinu valda oft miklum breytingum á honum. Hljóðheimur okkar er nátengdur sköpun og einkennum þjóðlegra gilda, ekki síst í tónlist og dansi, og hann ber að virða, rannsaka og vernda til jafns við vatn, andrúmsloft og jarðargróður. |
IV. Norðurþjóðahátíð
Vegleg Þjóðlagahátíð mun haldin árlega í lok Norðurþjóða akademíunnar. Þjóðlagahátíðin
mun vera fagnaður allra aðildarlandanna þar sem afrakstur akademíanna er kynntur í öllum sínum fjölbreytileika.
i. |
Tónleikar: Þar munu verða haldnir tónleikar með innlendum og erlendum listamönnum og frumflutt ný tón- og dansverk byggð á gömlum
hefðum. |
ii. |
Málþing: Nemendur og kennarar í fræðigreinum kynna rannsóknir sínar og skiptast á hugmyndum. |
Markmið Norðurþjóðaverkefnisins er að efla fjölbreytta tónlistar- og dansmenningu norrænna þjóða með því að gera hana aðgengilegri innanlands og utan, bjóða upp á fjölbreytta kennslu, rannsóknir, tónleika og sýningar. Þjóðtónlist og þjóðdansar Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga eru lítið þekktir og hafa fengið mjög litla umfjöllun og athygli á heimsvísu. Þjóðtónlist og þjóðdansar annarra aðildarlanda Norðurþjóðaverkefnisins eru betur þekktir utan heimalandanna, og gegna auk þess virðingarstöðu innan samfélagsins. Sameining þessa mikilvæga þjóðararfs landanna mun styðja við uppbyggingu þjóðtónlistar og þjóðdansa á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum og gera okkur sýnilegri á markaði heimstónlistar.