Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar

  Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir er sellóleikari, tónskáld og ljóðskáld. Efnisskrá hennar byggir á frumortum ljóðum sem eru ýmist lesin eða sungin.

Ljóðið kemur langt og mjótt

 
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir er sellóleikari, tónskáld og ljóðskáld. Efnisskrá hennar byggir á frumortum ljóðum sem eru ýmist lesin eða sungin. Lesnu ljóðin eru nokkurs konar lím sem tengja sönglögin saman. Hún leitar víða fanga í ljóðum sínum; bregður fyrir sig rímnakveðskap og syngur jafnvel á frönsku í stíl við franskan chanson – sem er hin eiginlega þjóðlagahefð Frakka á 20. öld.

Steinunn hóf sellónám hjá Hauki Hannessyni, lærði síðar hjá Gunnari Kvaran og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000. Þá hélt hún til náms í París hjá Michel Strauss. Frá haustinu 2003 hefur hún lagt stund á barokksellónám hjá Christoph Cion og Bruno Cocset sem og kammertónlist, Gregorsöng, barokkdans og sitthvað fleira. Ytra leikur hún með ýmsum hópum, sér í lagi barokk og spunatónlist. Hér heima hefur hún m.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og kammersveitinni Ísafold.

Auglýsingar

Raddir Íslands
Folk Music Festival
Síldarminjasafnið
Héðinsfjörður

Mynd augnabliksins

2006_0717image0103.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf