Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar

Kammerkór Norðurlands var stofnaður á haustdögum 1998. Hann skipar söngfólk af Norðurlandi, allt frá Kópaskeri vestur á Sauðárkrók. Kórinn hefur flutt

Kammerkór Norðurlands

Kammerkór Norðurlands var stofnaður á haustdögum 1998. Hann skipar söngfólk af Norðurlandi, allt frá Kópaskeri vestur á Sauðárkrók. Kórinn hefur flutt margs konar tónlist víðs vegar um Norður- og Vesturland, einnig á Selfossi og í Reykjavík. Kórinn hefur haldið tónleika í samstarfi við aðra og þá tekist á við stærri verk á borð við Krýningarmessu Mozarts, Sálumessu Verdis, Messu eftir C. M. Widor og páskahluta Messíasar eftir Händel. Á undanförnum árum hefur kórinn einbeitt sér að flutningi íslenskra tónverka og frumflutt nokkur þeirra. Sum verkanna hafa verið samin sérstaklega fyrir kórinn.

Guðmundur Óli Gunnarsson nam hljómsveitarstjórn í Hollandi og Helsinki. Hann hefur verið stjórnandi Kórs Trésmiðafélags Reykjavíkur, Kórs Menntaskólans við Sund, Háskólakórsins, Kórs Menntaskólans á Akureyri og er nú stjórnandi Karlakórs Dalvíkur. Guðmundur Óli hefur verið aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frá 1992 og fastur stjórnandi Caput frá 1987. Hann tók við stjórn Kammerkórsins árið 2000. Guðmundur Óli hefur auk þess samið kórlög og flutti Kammerkórinn tvö þeirra á síðasta ári.

 

Auglýsingar

Raddir Íslands
Fjallabyggð
Menningarráð Eyþings
Tónlistarsjóður
Rauðka ehf
Gistihúsið Hvanneyri
Síldarminjasafnið
Siglufjarðarkirkja
Rammi
Tónastöðin
Byko
Norvík

Mynd augnabliksins

gotland_2003_mart_og_stein.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf