
Árið 1999 var stofnað Félag um Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði. Það setti
sér að markmiði að koma á fót þjóðlagasetri á Siglufirði, halda árlega þjóðlagahátíð í
bænum og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistararfi. Þjóðlagasetrinu er ætlað tvíþætt hlutverk:
1. Að kynna þjóðlagaarfinn á aðgengilegan hátt með sýningu sem taki mið af ferðamönnum að sumri en skólafólki á vetri
2. Að sinna rannsóknum og útgáfustarfsemi á íslenskum þjóðlögum
Árið 2000 keypti Félag um Þjóðlagasetur Maðdömuhúsið svokallaða, eitt elsta hús Siglufjarðar,
þar sem sr. Bjarni Þorsteinsson skráði þjóðlagasafn sitt að stórum hluta á árunum 1888-1898. Húsið var fært til
upprunalegs horfs og vígt af forseta Íslands sumarið 2006. Þar gefur að sjá á myndböndum fólk víðs vegar að af landinu við
kveðskap og hljóðfæraleik, auk þess sem eldra fólk segir frá tónlistariðkun í heimabyggð sinni.

Stjórn Félags um Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar:
- Gunnsteinn Ólafsson formaður
- Sigurður Hlöðvesson ritari
- Guðný Róbertsdóttir meðstjórnandi
- María Elín Sigurbjörnsdóttir gjaldkeri
Varastjórn:
- Dúi J. Landmark kvikmyndagerðarmaður
- Örlygur Kristfinnsson safnstjóri
Þeir sem vilja skrá sig í félagið geta gert það hér.








