Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar

Kenndur verður fjölbreyttur dans Ewe-þjóðflokksins í Ghana sem nefnist Gahu. Dansinn kallar á hreyfingar og stellingar sem okkur kunna

Afríkanskur dans

Kenndur verður fjölbreyttur dans Ewe-þjóðflokksins í Ghana sem nefnist Gahu. Dansinn kallar á hreyfingar og stellingar sem okkur kunna að þykja einkennilegar og krefst þess að dansararnir sökkvi sér ofan í flókinn taktvef ásláttarhljóðfæraanna. Dansinn er í mörgum köflum og verða kenndir eins margir kaflar og nemendur komast yfir og hafa þrek til að læra. Einnig verða kennd nokkur sönglög sem tengjast dansinum því söngurinn og dansinn eru órjúfanleg heild. Hér má sjá stutt myndband með grunnsporunum tveimur og vefaraspori dansins.

Guðrún Ingimundardóttir er tónskáld og tónlistarmannfræðingur. Hún stundaði nám í tónsmiðum við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk síðan doktorsprófi frá háskólanum í Arizona í Bandaríkjunum í tónsmíðum og tónlistarmannfræði. Hún er nú búsett á Siglufirði og starfar fyrir Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar.

 

 

Auglýsingar

Síldarminjasafnið
Raddir Íslands
Héðinsfjörður

Mynd augnabliksins

kammerkor_nordurlands_lowr.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf